Skammast yfir samkynhneigðum fíl

Þessi fíll tengist ekki fréttinni.
Þessi fíll tengist ekki fréttinni. Reuters

Pólskur stjórnmálamaður gagnrýnir stjórnendur dýragarðs í bænum Poznan í Póllandi harðlega fyrir að kaupa samkynhneigðan fíl.

Að sögn pólskra fjölmiðla hefur fíllinn Ninio, sem er 10 ára, nýlega bæst við í fílagirðinguna í Poznan. En svo virðist, sem hann kjósi frekar félagsskap karlfílanna en kvendýranna.

„Við borguðum ekki 37 milljónir zloty (um það bil 1,4 milljarða króna) fyrir stærsta fílahús Evrópu til að hýsa þar samkynhneigðan fíl," sagði   Michal Grzes, þingmaður Laga- og réttarflokksins við pólska fjölmiðla. „Hvernig á Ninio að fjölga sér ef hann vill bara umgangast karlfílana?"

Forstjóri dýragarðsins segir hins vegar að Ninio sé ekki orðinn kynþroska enn og verði ekki fyrr en um 14 ára aldur. Því sé of snemmt að segja til um kynhneigð hans. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kemst ekki upp með neitt þessa dagana og á því að leggja spilin á borðið. Treystu innsæi þínu og láttu það eftir þér að gera það sem þig langar.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Moa Herngren