Húðflúraði kynfæri á bak vinar síns

Jin og jang táknið varð að kynfæri á baki mannsins
Jin og jang táknið varð að kynfæri á baki mannsins

Ástralskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að húðflúra rúmlega 40 sm langt typpi á bak vinar síns. Ekki nóg með það heldur bætti hann slagorði við þar sem ýjað er að því að maðurinn sé samkynhneigður. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafði maðurinn beðið vin sinn, húðflúrmeistarann, um húðflúr af jin og jang merkinu með nokkrum drekum í kring, samkvæmt frétt Queensland Times.

Mun það kosta manngreyið um 224 þúsund krónur að láta fjarlægja kynfærið og  slagorðið af bakinu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu höfðu þeir félagar deilt áður en húðflúrunin hófst. Er fórnarlambið gjörsamlega miður sín enda hafði hann í fyrstu engan áhuga á að fá sér húðflúr. Að lokum féllst hann á að fá sér eitt en þá sárasaklaust grundvallartákn austurlenskrar heimspeki.

En það var ekki eins og húðflúrmeistarinn hafi verið einn að verki því þriðji maðurinn fylgdist með og hvatti húðflúrarann áfram. Báðu þeir manninn um að forðast sólina í þó nokkurn tíma og alls ekki sýna neinum húðflúrið í nokkrar vikur. Þegar hann kom heim sýndi hann hinsvegar sambýliskonu sinni húðflúrið og það eina sem hún sagði var: „Mig grunar að þetta sé ekki húðflúrið sem þig langaði í."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes