Jón Gnarr er ekki geimvera

Jón Gnarr, borgarstjóri.
Jón Gnarr, borgarstjóri.

Hið íslenska geimverufélag, sem Magnús Skarphéðinsson er í forsvari fyrir, hefur sent frá sér yfirlýsingu um að Jón Gnarr, borgarstjóri, sé ekki geimvera þrátt fyrir yflýsingar sínar þar að lútandi.

Borgarstjóri lýsti því yfir í viðtali við Kastljós Sjónvarpsins á mánudag að hann væri geimvera í íslenskum stjórnmálum og síðan væri spurningin hvort einhver Arnold Schwarzenegger væri þarna úti, sem réði við hann.

„Þó sum ytri hegðunareinkenni borgarstjórans og útlit gætu bent til að svo sé, þá er svo alls ekki eftir nánari rannsókn félagsins á málinu. Hr. Jón Gnarr villir á sér heimildir þegar hann segist vera frá öðrum hnöttum. Maðurinn hefur bæði kennitölu og jarðneska foreldra og þekkta en vafasama fortíð. Hann hefur eftir athugun félagsins eingöngu sama pólitíska sleifaralags-syndrómið og flestir aðrir annars og þriðja flokks stjórnmálamenn sem lítið geta annað en svikið loforð sín. Það er gjörólíkt flestum eða öllum geimverum sem heimsótt hafa jörðina og við þekkjum flestar af góðu einu. – Þessu lýsum við hér með yfir að viðlögðum vísindalegum heiðri Hins Íslenska Geimverufélags," segir í yfirlýsingunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes