Siglingar á Alster-vatni í Hamborg í Þýskalandi hafa aukist mikið í sumar. Ástæðan er hafmeyja í yfirstærð sem liggur á botni vatnsins.
Hafmeyjan er um fjögurra metra há. Listaverkið er eftir listamanninn Oliver Voss. Verkið mun gleðja augu borgarbúa og þeirra sem ferðast til borgarinnar til 12. ágúst.