Smábærinn Bethel í Alaska telur ekki nema 6.200 manns og er um 60 km inni í landi. Bærinn er varla í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að matvörukeðjan Taco Bell hefur ákveðið að gefa öllum í bænum ókeypis Taco.
Í bænum er enginn skyndibitastaður en fyrir nokkru síðan komst sá orðrómur á kreik að Taco Bell væri að opna stað í bænum. Orðrómurinn reyndist ekki á rökum reistur og olli það bæjarbúum miklum vonbrigðum. Forsvarsmenn Taco Bell heyrðu af málinu og ákváðu að gefa öllum bæjarbúum ókeypis máltíð en fyrirtækið ætlar að elda 10 þúsund taco-skeljar fyrir bæjarbúa.