Tvær konur þurfti að leita aðhlynningar á spítala í bænum Loudon í Norður-Virginíu í vikunni eftir árekstur við dádýr. Það vekur hins vegar athygli að önnur kvennanna sat á bakvið stýri á bifreið, en hin konan var skokkari.
Ökumaðurinn var 71 ára gömul kona, en dádýrið stökk skyndilega í veg fyrir bifreið hennar. Skaust þá dádýrið í laglegum boga beint á konu sem var skokkandi meðfram veginum. Meiðsl kvennanna voru ekki alvarleg.