Hvað er svona merkilegt við það að vera kvenmaður?

Kvennafrídagur | 24. október 2023

Hvað er svona merkilegt við það að vera kvenmaður?

Ka­ritas Harpa Davíðsdótt­ir, fjöl­miðla- og tón­list­ar­kona, flutti lagið „Ekkert mál“ með Grýlunum með nýjum texta á samstöðufundi kvenna og kvára í Neskaupstað í dag. 

Hvað er svona merkilegt við það að vera kvenmaður?

Kvennafrídagur | 24. október 2023

Karitas Harpa Davíðsdóttir samdi textann í gær­kvöldi en hún leiddi …
Karitas Harpa Davíðsdóttir samdi textann í gær­kvöldi en hún leiddi fjölda­söng á sam­stöðufund­in­um í dag ásamt Hjör­dísi Helgu Selj­an og Soffíu Björg­úlfs­dótt­ur. Ljósmynd/Birta Rán Björgvinsdóttir

Ka­ritas Harpa Davíðsdótt­ir, fjöl­miðla- og tón­list­ar­kona, flutti lagið „Ekkert mál“ með Grýlunum með nýjum texta á samstöðufundi kvenna og kvára í Neskaupstað í dag. 

Ka­ritas Harpa Davíðsdótt­ir, fjöl­miðla- og tón­list­ar­kona, flutti lagið „Ekkert mál“ með Grýlunum með nýjum texta á samstöðufundi kvenna og kvára í Neskaupstað í dag. 

Textann samdi Karitas Harpa í gærkvöldi en hún leiddi fjöldasöng á samstöðufundinum í dag ásamt Hjördísi Helgu Seljan og Soffíu Björgúlfsdóttur.

„Í gærkvöldi meðan ég var að svæfa dóttur mína var ég að hugsa um lögin sem við höfðum skoðað og íhugað, eitt þeirra var „Ekkert mál“ með Grýlunum. Eins mikið og ég elska það lag, og þá sveit, langaði mig meira að syngja um okkur á þessum degi. Hausinn minn fór á fullt og ég settist niður eftir að Bogey sofnaði og skrifaði upp það sem mér þótti geta verið jafnvel enn meira viðeigandi á þessum mikla degi,“ segir Karitas á Facebook.

Texti Karitasar Hörpu við lagið „Ekkert mál“ með Grýlunum:

Hvað er svona merkilegt við það
að vera kvenmaður?
Hvað er svona merkilegt við það
að „passa“ börn?
Hvað er svona merkilegt við það,
að sinna heimili?
Passa’ð allir fái rétta stærð í jólagjöf?

Að vinna’á leikskóla?
Ekkert mál
Að vera kennari?
Ekkert mál
Að veita umönnun?
Ekkert mál?
Að sinna þjónustu?
Ekkert mál
Það er ekkert mál

Er nokkuð merkilegt við það, að vera óörugg?
Að geta ekki gengið ein um nótt, með heyrnatól
Ef það er ekkert merkilegt við það,
að vera kvennmaður.
Afhverju má ég ekki fara út, í stuttum kjól?

Að plana sumarfrí?
Ekkert mál
Að plana vikuna?
Ekkert mál
Að plana máltíðir?
Ekkert mál
Fara yfir barnaföt?
Ekkert mál

Ef það er ekkert merkilegt við það,
að vera kvennmaður
Hvernig erum við þá svona mörg að brenna út?
Ef það er ekkert merkilegt við það að sinna þriðju vakt,
fara stórir menn þá í fýlu’ og setj’upp stút?

Að vinna’á leikskóla?
Ekkert mál
Að vera kennari?
Ekkert mál
Að veita umönnun?
Ekkert mál?
Að sinna þjónustu?
Ekkert mál
Það er ekkert mál

mbl.is