Kallarðu þetta jafnrétti?

Kvennafrídagur | 24. október 2023

Kallarðu þetta jafnrétti?

Dagskrá kvennaverkfalls 2023 á Akureyri fór fram með pomp og prakt á Ráðhústorginu í dag undir yfirskriftinni: Kallarðu þetta jafnrétti?

Kallarðu þetta jafnrétti?

Kvennafrídagur | 24. október 2023

Vel var mætt á torgið og að sögn Erlu Hrannar …
Vel var mætt á torgið og að sögn Erlu Hrannar Unnsteinsdóttur, framkvæmdastýru Aflsins á Akureyri, sem kom að skipulagningu dagskrárinnar, var frábær stemning og mikill baráttuhugur í konum og kvárum. Ljósmynd/Aðsend

Dagskrá kvennaverkfalls 2023 á Akureyri fór fram með pomp og prakt á Ráðhústorginu í dag undir yfirskriftinni: Kallarðu þetta jafnrétti?

Dagskrá kvennaverkfalls 2023 á Akureyri fór fram með pomp og prakt á Ráðhústorginu í dag undir yfirskriftinni: Kallarðu þetta jafnrétti?

Vel var mætt á torgið og að sögn Erlu Hrannar Unnsteinsdóttur, framkvæmdastýru Aflsins á Akureyri, sem kom að skipulagningu dagskrárinnar, var frábær stemning og mikill baráttuhugur í konum og kvárum.

Meðal þeirra sem komu fram á Ráðhústorgi í dag voru …
Meðal þeirra sem komu fram á Ráðhústorgi í dag voru Skandall, hljómsveit Feministafélagsins í Menntaskólanum, hljómsveitin Drottningarnar, Kvennakór Akureyrar og Vilhjálmur Bragason úr Vandræðaskáldum. Ljósmynd/Aðsend

„Við erum alveg komnar með nóg“

„Við fylltum torgið og náðum vel upp göngugötuna. Það var boðið upp á þétta dagskrá sem Sesselía í Vandræðaskáldum hélt utan um,“ segir Erla í samtali við mbl.is.

Meðal þeirra sem komu fram var Skandall, hljómsveit Femínistafélagsins í Menntaskólanum, hljómsveitin Drottningarnar, Kvennakór Akureyrar og Vilhjálmur Bragason úr Vandræðaskáldum.

Þá segir Erla að Ásta Flosadóttir hafi haldið áhrifamikið ávarp, „þannig að dagskráin var mjög flott. Það var mikill baráttuhugur í okkur. Við erum alveg komnar með nóg.“

Ljósmynd/Aðsend

Góð samstaða og vel tekið undir í ræðunum

Linda Björk var ein af þeim sem tók þátt í samstöðufundinum á Ráðhústorgi í dag. Linda sagðist ánægð með fundinn og mætinguna. Hún treysti sér ekki til að slá á fjöldann en sagði vel hafa verið mætt á torgið.

„Það var góð samstaða og vel tekið undir í ræðunum. Svo voru flott tónlistaratriði og Gerður Ósk Hjaltadóttir stýrði dansi, þetta var vel heppnað og mjög skemmtilegt.“ Linda vildi sérstaklega minnast á erindi frá Ástu Flosadóttur sem hún sagði að hafa verið mjög flott.

„Ég tengdi mjög vel við erindi Ástu en við erum á svipuðum aldri. Ég kannaðist við margt sem hún hafði að segja.“

Linda Björk með lýsandi skilti: Mjög þreytt eftir að hafa …
Linda Björk með lýsandi skilti: Mjög þreytt eftir að hafa haldið á þessu skilti síðan 1975. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is