George Allen, öldungadeildarþingmaður Repúblíkanaflokksins í Virginíu, hefur opinberlega játað ósigur í kosningunum og hafa demókratar þar með formlega tryggt sér meirihluta í öldungadeildinni. Allen lýsti því yfir að hann hefði ákveðið að krefjast ekki endurtalningar atkvæða.