Yfirmenn sokkins farþegaskips ákærðir fyrir vanrækslu

Sea Diamond sekkur í sæ.
Sea Diamond sekkur í sæ. AP

Saksóknari á Grikklandi hefur birt skipstjóra og fimm öðrum yfirmönnum skemmtiferðaskips, sem sökk í gærmorgun, ákærur fyrir glæpsamlega vanrækslu. Skipið steytti á skeri og sökk skammt frá eyju í Eyjahafi á fimmtudag. Um 1600 manns voru um borð og tókst að koma öllum á land nema frönskum feðginum, sem enn er saknað.

Grísk sjónvarpsstöð sagði, að skipstjóri og yfirmenn á skemmtiferðaskipinu Sea Diamond hefðu verið ákærðir fyrir valda skipsstrandi með vanrækslu, fyrir að brjóta alþjóðlegar öryggisreglur um umferð skipa og fyrir að menga umhverfið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert