Óskírð börn ekki lengur í forgarði vítis
Benedikt páfi var formaður guðfræðinefndar Páfagarðs áður en hann var kjörinn páfi fyrir tveimur árum. Reuters
Í skjalinu kemur fram að hin hefðbundna útskýring á forgarði vítis sé „staður þar sem óskírð börn eyða eilífðinni án samskipta við Guð". Þetta segir guðfræðinefndin er óþarflega takmörkuð sýn sýn á frelsun. Það sé útbreiddari guðfræðilegur skilningur nú en áður, að Guð sé miskunnsamur og vilji frelsa allar mannverur. Útilokun saklausra barna frá himnaríki endurspegli ekki ást Krists á þeim. Kaþólska kirkjan mun þó áfram kenna, að skírnin sé hin eðlilega leið fyrir frelsun alls fólks og hvetur alla foreldra til að skíra nýfædd börn sín.
Niðurstaða nefndarinnar, sem er ráðgefandi fyrir Páfagarð, byggist á mikilli guðfræðilegri vinnu en í nefndinni sitja 30 menn. Skjöl nefndarinnar eru oft undanfari opinbera yfirlýsinga frá Vatíkaninu.
Eftir því sem kemur fram á fréttavef Catholic News Service, segir að spurningin um frelsun óskírða ungabarna hafi verið bráðnauðsynleg þar sem fjöldi óskírðra barna sem deyi, aukist stöðugt. Skýringin er sú, að sífellt fleiri trúlausir foreldrar eignist börn nú en áður og mörg önnur börn eru fórnarlömb fóstureyðinga. Í umræddu skjali er minnst á að fólki finnist erfitt að samþykkja að Guð sé góður og miskunnsamur en útiloki á sama tíma smábörn, sem ekkert hafa gert rangt.
Forgarður vítis hefur aldrei verið skilgreindur sem hluti af kenningarkerfi kirkjunnar og hvergi er minnst á þetta hugtak í núverandi kennslubókum kaþólsku kirkjunnar en það hefur þó lengi verið talin hluti af kenningum hennar. Á fimmtu öld ályktaði heilagur Ágústín að ungabörn sem létust óskírð væru dæmd til vistar í helvíti. Á 13. öld bjuggu guðfræðingar til hugtakið forgarð helvítis, sem væri staður fyrir óskírð börn. Þar myndu þau ekki þjást en væru svipt guðlegri sýn. Um aldaskeið hafa páfar og ráðgjafar kirkjunnar gætt þess, að skilgreina forgarðinn ekki sem hluta af kenningarkerfi.
Bloggað um fréttina
-
Sunna Dóra Möller Kirkjan að slá í gegn... -
Svanur Sigurbjörnsson Úr limbó -
Tinna Gunnarsdóttir Gígja Jæja já? -
Kári S. Lárusson Plássleysi í forgarði Vítis -
Jón Agnar Ólason Hringlandi hentistefna og ljótleiki -
Páll Einarsson what ? -
K Zeta Forgarður vítis -
Margrét St Hafsteinsdóttir Grimmd hinnar "heilögu kirkju" enn við lýði -
G. Tómas Gunnarsson Mikil er miskunin -
Púkinn Guðfræðilegar rannsóknir? -
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson Að sjá ljósið
Erlent »
- Tóku forskot á sæluna í Bonn
- Fjöldamótmæli vegna ACTA
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
- Barist um skatta og eyðslu
- Fimm blaðamenn handteknir
- Lét sér fátt um finnast við strandið
- Hóta Vesturlöndum og Ísrael
-
Íranar fagna byltingarafmæli
- Hvatt til fjöldamótmæla á Spáni
- Gingrich og Santorum herja á Obama
- Barist um bandarísku sálina
- Ásaka Breta um hervæðingu
- Dóná fraus í nótt
- Segja al-Qaeda bera ábyrgð í Sýrlandi
- Saadi Gaddafi boðar byltingu
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
Föstudagur, 10.2.2012
- Refsilaus mynd með nasistafána
- Þrír látnir og tveir særðir eftir gíslatöku
- Vill herskyldu fyrir konur
- Verkföll fyrir kjötkveðjuhátíð
- Ungir Rússar taka eigið líf
- Fraus í hel
- Lögsæki ekki dómara
- Segir minni tiltrú á SÞ
- Seldi CIA gögn um rússneskar eldflaugar
- Fræg bygging eldi að bráð
- Spilling verður N-Kóreu að falli
-
Enn gýs í Eldhringnum
- Leggja niður störf og mótmæla
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
- Heimilislausir í skjól í Bakú
- Garzón gefst ekki upp
-
260 dauðir höfrungar á land
- Leitað að lausn á Maldíveyjum
- Hældi Breivik á Facebook
- Dönsk ungmenni vilja ekki í sturtu
-
Áframhaldandi ógnaröld í Homs
- Grikkjum sett hörð skilyrði
- Kvenhermenn nær vígvellinum
-
FBI birtir skjöl um Steve Jobs
-
Obama hrósaði Monti
Fimmtudagur, 9.2.2012
Erlend málefni
- Strand skemmtiferðaskipsins Costa Concordia
- News of the World
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Mótmæli í Grikklandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 19. apríl 2007, Erlent Abbas sagður trúa því að Johnston sé á lífi
- Fimmtudagur, 4. maí 2006, Erlent „Þú munt deyja með kveini," tilkynnti dómarinn Moussaoui
- Sunnudagur, 16. apríl 2006, Erlent Nýtt myndamál í uppsiglingu?
- Þriðjudagur, 26. september 2006, Erlent Kvæntur erkibiskup settur út af sakramentinu
- Föstudagur, 20. júlí 2007, Erlent Palestínskum föngum fagnað við komuna á Vesturbakkann
-
Benedikt: Stóðumst áhlaup Stjörnunnar
-
Skemmdarverk verða ekki liðin
-
Léttist um rúmlega 60 kíló
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði öðruvísi biskup



































