Lögregla skaut á mótmælendur í Afganistan

Á annan tug manna lét lífið og tugir særðust þegar lögregla hóf skothríð á hóp fólks sem vildi mótmæla brottvikningu héraðsstjóra í Jowsjanhéraði í norðurhluta Afganistans.

Stuðningsmenn stríðsherrans Abdul Rashid Dostam stóðu fyrir mótmælunum og þegar þeir hófu að kasta grjóti á lögreglu svaraði hún með skothríð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert