Bloomberg segir sig úr Repúblikanaflokknum

Michael Bloomberg
Michael Bloomberg Reuters

Michael R. Bloomberg, borgarstjóri í New York, sagði sig úr Repúblikanaflokknum í gær. Gera margir því skóna, að Bloomberg sé að undirbúa framboð í forsetakosningunum í Bandaríkjunum á næsta ári sem óháður frambjóðandi en Bloomberg hefur látið til sín taka í bandarískri landsmálaumræðu í æ ríkari mæli að undanförnu.

Bloomberg, sem er 65 ára, var áður í Demókrataflokknum en gekk í Repúblikanaflokkinn árið 2000 áður en hann bauð sig fyrst fram í embætti borgarstjóra í New York. Hann er vellauðugur og yrði því ekki í vandræðum með að fjármagna kosningabaráttu fyrir forsetakosningarnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert