Týndum Lego-kalli skolar á land

Risavaxinn Lego-kall skolaði á land í Hollandi, en enginn veit hvaðan hann kom eða hvað hann er. Starfsmenn á drykkjasölubás veiddu risann, brosandi Lego-kall, á land í Zandvoort.

Þeir drógu 2,5 metra háan karlinn með gulan haus og í blárri skyrtu með áletruninni „Engu sannari en þú “ úr sjónum og stilltu honum upp á ströndinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert