Forseti Póllands lagður inn á sjúkrahús

Lech Kaczynski, forseti Póllands
Lech Kaczynski, forseti Póllands Reuters

Pólski forsetinn Lech Kaczynski var í dag lagður inn á sjúkrahús og er þar undir eftirliti. Í yfirlýsingu frá skrifstofu forsetans segir einungis að sökum þess að heilsu hans hafi hrakað hafi hann verið lagður inn á sjúkrahús og að frekari upplýsingar verði ekki veittar fyrr en hann hafi gengist undir rannsóknir.

Fréttastofan AFP hefur eftir starfsmanni á sjúkrahúsinu sem forsetinn er á að hann sé máttlaus og með háan hita.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert