Reiði vegna flugskeytaárásar á leikskóla í Ísrael

Skólabörn í Sderot á æfingu í skóla sínum í gær.
Skólabörn í Sderot á æfingu í skóla sínum í gær. AP

Mikil reiði ríkir í Ísrael eftir að Qassam flugskeyti hafnaði í garði leikskóla í bænum Sderot í suðurhluta Ísraels í morgun en tólf börn voru flutt á sjúkrahús vegna sjokks eftir árásina. Flugskeytið er eitt sjö flugskeyta sem skotið var yfir landamærin frá Gasasvæðinu í morgun og hafa palestínsku Jihad-samtökin lýst ábyrgð á tilræðunum á hendur sér og sagt þau „gjöf til Ísraela í upphafi nýs skólaárs”. Þetta kemur fram á fréttavef Ha’aretz.

Eli Moyal, borgarstjóri Sderot, sakaði ísraelsku ríkisstjórnina um það í morgun að hafa snúið baki við íbúum borgarinnar. “Þeim er einfaldlega alveg sama,” sagði hann.

Tzachi Hanegbi, formaður utanríkis- og varnarmálanefndar Ísraelsþings, sagði í morgun að Ísraelar yrðu að hafa að íhuga umfangsmikla hernaðaraðgerð á Gasasvæðinu. „Á einhverjum tímapunkti, sem Ísraelar, velja, verður ekki um neitt annað að ræða en að ráðast í hernað á Gasa,” sagði hann.

Foreldrar grunnskólabarna í Sderot höfðu hótað því fyrir helgi að senda ekki börn sín í skóla er grunnskólaárið hófst á sunnudag. Þeir féllu hins vegar frá því eftir að yfirvöld hétu því að öryggis grunnskólabarna yrði sérstaklega gætt og að byrgi við skólana yrðu yfirfarin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert