Faðir yfirheyrður vegna morðs á fjögurra ára gömlum dreng

Breska lögreglan yfirheyrir nú föður fjögurra ára gamals drengs sem fannst með ótal stungusár. Lést drengurinn fljótlega eftir að komið var með hann á sjúkrahús í Slaithwaite í Huddersfield. 14 ára gömul systir drengsins liggur alvarlega særð á sjúkrahúsi en hún er einnig með fjölda stungusára.

Samkvæmt frétt Sky sjónvarpsstöðvarinnar komst stúlkan út af heimili föður drengsins en hún fannst meðvitundarlaus við húsið. Talið er að hún hafi verið að sækja bróður sinn, en börnin eru ekki samfeðra, þegar ráðist var á þau. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru tveir menn handteknir í tengslum við málið. Annar þeirra er faðir drengsins sem lést.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert