Fleiri Danir fljúga til vinnu

Reuters

Það færist í vöxt að Danir fljúgi til og frá vinnu og segir Berlingske Tidende frá því í dag að á stöðum þar sem skattar er lágir, t.a.m. í Álaborg og Hjørring hafi flugferðir innanlands aukist mikið. Á eynni Borgundarhólmi fljúga nú 300 íbúar daglega til vinnu með áætlunarflugi á hverjum degi, en flug fram og til baka til Kaupmannahafnar kostar um 600-700 danskar krónur, eða um 7000 - 8000 íslenskar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert