Talíbanar hengdu lík lögreglumanna upp í tré

Herskáir talíbanar í Afganistan skutu til bana fimm lögreglumenn sem þeir rændu fyrir tveimur mánuðum og hengdu lík þeirra upp í tré, að því er lögreglan í landinu greindi frá í dag. Höfðu henni borist upplýsingar um líkin sem héngu í trénu, og er lögreglumenn fóru á vettvang lentu þeir í skotbardaga við tvo talíbana, og felldu þá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert