Dæmdur fyrir 6 morð

Kanadískur svínabóndi var í dag dæmdur fyrir morð af annarri gráðu en hann er ákærður fyrir morð á 26 konum. Var hann í dag dæmdur fyrir morð á sex þeirra en enn á eftir að kveða upp dóm í máli hinna kvennanna. Þýðir dómurinn lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn fyrr en eftir tíu ár.

Réttarhöldin í málinu hafa staðið yfir í tæpt ár í Vancouver í Kanada en Robert Pickton hefur neitað því að hafa myrt konurnar, sem  flestar voru vændiskonur og fíklar, sem hurfu sporlaust á tveimur áratugum.

Í kjölfarið munu svo fara fram önnur réttarhöld þar sem hann verður ákærður fyrir morð á 20 konum til viðbótar, sem taldar eru hafa horfið sporlaust frá rauða hverfinu i í Vancouver. Lögregla hefur tilkynnt um 65 konur sem er saknað á svæðinu og er óttast að Pickton hafi jafnvel myrt mun fleiri en þessar 26.

Þótt reynt hafi verið að halda upplýsingum um rannsóknina leyndum fyrir almenningi, í því skyni að tryggja sem hlutlausastan kviðdóm, hafa fjölmiðlar sagt frá grunsemdum um að Pickton hafi brytjað fórnarlömb sín í trjákurlara og fóðrað svínin á búi sínu á þeim.

Hann er sagður hafa boðið vændiskonunum heim til 17 ekru svínabús fjölskyldu sinnar, „Piggy Palace", þar sem hann hafi verið frægur fyrir að efna til „villtra" samkvæma.

Teikning af Pickton á sjónvarpsskjá í réttarsalnum
Teikning af Pickton á sjónvarpsskjá í réttarsalnum AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert