Fluttur á sjúkrahús rétt áður en sleppa átti honum af dauðadeild

Ken Richey
Ken Richey AP

Skoti sem hefur verið á dauðadeild fangelsis í Ohio í Bandaríkjunum í tuttugu ár var fluttur á sjúkrahús í dag, nokkrum klukkustundum áður en taka átti mál hans fyrir á ný en búist var við að honum yrði sleppt  úr fangelsi í dag.

 
Ken Richey, sem er 43 ára, hafði samþykkt samkomulag við saksóknaraembættið og átti að ganga frá því í dag. Það hefði þýtt að hann hefði verið látinn laus síðar í dag og átti hann pantað flug til Edinborgar á föstudag. Ekki er vitað hvað amar að honum en hann var með sára verki fyrir brjósti og þykir líklegt að um hjartveiki sé að ræða. Samkvæmt Sky hefur réttarhöldunum verið frestað þar til 8. janúar út af veikindum hans.

Fyrr á þessu ári var snúið við dómi frá árinu 1986 þar sem Richey hafði verið dæmdur til dauða fyrir að hafa kveikt í með þeim afleiðingum að tveggja ára stúlka lést. Mannréttindasamtök og stjórnmálamenn höfðu lýst yfir ánægju með að hann yrði látinn laus en samkvæmt samkomulaginu þá hefði dómurinn orðið styttri en þau tuttugu ár sem hann hefur beðið aftöku í Ohio.

Richey var færður á dauðadeild í janúar 1987 en hann var dæmdur fyrir íkveikju sem samkvæmt saksóknara beindist gegn fyrrverandi unnustu og nýjum unnusta hennar. Richey, sem alltaf hefur haldið fram sakleysi sínu, neitaði á sínum tíma að gera samkomulag við ákæruvaldið um játa sekt í málinu sem hefði þýtt 11 ára fangelsi fyrir líkamsárás og manndráp. Í eitt skipti á þeim tuttugu árum sem liðin eru frá að hann var dæmdur hefur munað einungis hársbreidd að hann yrði tekinn af lífi en einungis tæpri klukkustund áður en aftakan átti að fara fram var hætt við.

Lögfræðingur hóps sem berst gegn dauðarefsingum segir að málið sé með ólíkindum. Saklaus maður hafi verið dæmdur til dauða þar sem hann var með ómögulegan lögfræðing. Nú tveimur áratugum seinna þegar í ljós hefur komið að hann er saklaus þá þarf að hann að játa sekt í málinu til þess losna við að vera tekinn af lífi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert