Lést á skurðarborðinu

Carlos Marroquin frá Gvatemala lést er hann gekkst undir aðgerð sem miðaði að því að minnka umfang maga hans um 80%. Marroquin, sem var 47 ára, var 317 kíló og þjáðist af hjarta- og nýrnabilunum vegna offitu. þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.

Samkvæmt upplýsingum lækna hætti hjarta hans að slá skömmu eftir að aðgerðin hófst. Lænum tókst þá að koma hjarta hans aftur af stað en síðar hætti það aftur að slá.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert