Obama leiðir í New Hampshire
Nýjar skoðanakannanir benda til þess, að Barack Obama fari með sigur af hólmi í forkosningum demókrata í New Hampshire á þriðjudag. Samkvæmt könnununum mælist fylgi Obamas allt að 10 prósentum meira en Hillary Clintons en til þessa hefur Clinton notið meira fylgis í ríkinu.
Samkvæmt könnun Rasmussen stofnunarinnar, sem Sunday Times segir frá í dag, mælist fylgi Obamas nú 37% í New Hampshire en fylgi Clintons 27%. Könnunin var gerð daginn eftir forvalið í Iowa á föstudag þar sem Obama vann en Clinton lenti í þriðja sæti.
Önnur könnun, sem sjónvarpsstöðin CNN og útvarpsstöðin WMUR létu gera, bendir til að fylgi þeirra Obamas og Clintons sé jafnmikið, 33% meðal líklegra þátttakenda í forkosningunum. Hefur fylgi Obamas aukist um 4 prósentur frá samskonar könnun í desember en fylgi Clintons minnkað um 1 prósentu.
Í könnun blaðsins Concord Monitor mælist fylgi Clintons 34% en Obamans 33%.
Á kosningafundi í gærkvöldi reyndi Clinton að ná frumkvæðinu að nýju og sakaði Obama um að vera sjálfum sér ósamkvæmur í afstöðu til lykilmála. Þá væri hann óreyndur og meira maður orða en gerða. Obama vísaði þessu á bug og sagði mikilvægt að frambjóðendur reyndu ekki að afflytja stefnumál hver annars.
Meðal repúblikana nýtur John McCain örlítið meira fylgis í New Hampshire en þeir Mitt Romney og Mike Huckabee. Romney fór með sigur af hólmi í forvali Repúblikana í Wyoming í gær, sem vakti litla athygli, og Huckabee sigraði í forvalinu í Iowa.
Erlent »
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
Frakkar ætla frá Afganistan
- Myrti bróður sinn og sundurlimaði
- Vilja merkja vörur frá Ísrael
-
Egyptar kjósa forseta
- Vonir Le Pens um þingsæti í uppnámi
- Grikkir fá 23% lægri laun
- Varar Breta við íslenskri einangrun
- Margir heimilislausir eftir skjálfta
- Getnir eftir andlát föður og arflausir
- Fimm stjörnu flokkurinn vann sigur
- Dæmdur fyrir upptöku af herbergisfélaga
- Mannskætt rútuslys í Albaníu
- Óttast blóðuga borgarastyrjöld
- Kastaði börnum sínum fram af svölum
- Vilja Grikki áfram á evrusvæðinu
- Vatnið var rautt af blóði
- Þorpið fór á 84,6 milljónir
- Ráðherra til rannsóknar
- „Þið munuð deyja í dag, marxistar“
- Saleh lagður inn á spítala
- 14 aftökur í Íran í dag
- Náðist á upptöku
- Þúsundir hafast við í neyðarskýlum
- „Skrímslið frá Riga“ fékk 18 ára dóm
- Tekur við verðlaununum 16. júní
- Bandaríkjamenn og Pakistanar deila í Chicago
- Bandamenn Pútín í stjórn
- Áfram gert ráð fyrir aðild Grikkja
- Sjálfsmorðsárás í Jemen
- Þrír fórust á Everest
- Strauss-Kahn sakaður um hópnauðgun
- Átök í Líbanon
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Sýrland
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 3. janúar 2008, Erlent Fyrstu forkosningarar að hefjast
- Fimmtudagur, 13. desember 2007, Erlent Obama saxar á forskot Clintons
- Föstudagur, 21. desember 2007, Erlent Clinton og Obama jöfn í New Hampshire
- Mánudagur, 7. janúar 2008, Erlent Obama á mikilli siglingu
- Miðvikudagur, 2. janúar 2008, Erlent Taugar frambjóðenda þandar fyrir forkosningarnar í Iowa
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up


































