Spá góðu ári í Írak

Dregið hefur úr ofbeldi og voðaverkum í Írak.
Dregið hefur úr ofbeldi og voðaverkum í Írak. Reuters

Að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) og Sameinuðu þjóðanna er framundan tímabil efnahagslegs vaxtar og pólitískra framfara í Írak.

Fram kemur á fréttavef BBC að IMF spáir 7% hagvexti árið 2008 og að olíuframleiðsla muni fara upp um 200,000 tunnur á dag.

Sameinuðu þjóðirnar hrósa samræðum milli Súnníta og Sjíta og lofa starf ríkistjórnarinnar.

Sérfræðingar minna á að mikið velti á hraðri framvindu á næstu sex til tólf mánuðum.

Ofbeldi hefur minnkað í Írak og bjartsýni ríkir í kjölfar þess að íraska þingið samþykkti lög sem leyfa að fyrrum meðlimir Baath flokks Saddam Husseins verði leystir úr haldi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert