Berlusconi með forskot

Þingkosningar verða haldnar á Ítalíu um helgina og benda skoðanakannanir til þess að Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu og leiðtogi kosningabandalags mið- og hægri flokka muni bera sigur úr býtum.  

Í nýjustu skoðanakönnun mælist Berlusconi með talsvert forskot á keppinaut sinn Walter Veltroni, leiðtoga kosningabandlags mið- og vinstriflokka.   Berlusconi hélt sinn síðasta kosningafund í Róm í kvöld og hvatti þúsundir stuðningsmanna til þess að breyta hug óákveðinna kjósenda.  Veltroni heldur sinn síðasta kosningafund í Róm á morgun.

Boðað var til kosninga á Ítalíu fyrr en ætlað var eftir að fyrrum leiðtogi mið- og vinstriflokka, Romano Prodi, sagði af sér í janúar.  Ríkisstjórn Prodis féll eftir 20 mánaða setu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert