Sat saklaus í fangelsi í 27 ár

Maður að nafni James Woodward yfirgaf réttarsal í Dallas í Bandaríkjunum í gær frjáls maður eftir að hafa setið í fangelsi í 27 ár. Niðurstöður DNA rannsókna leiddu í ljós að Woodward var saklaus eftir allt saman.  

Woodward var sakfelldur fyrir að hafa nauðgað og myrt kærustu sína. Niðurstöður í DNA rannsóknum hafa forðað átján manns frá frekari fangelsisvist. Þykja þetta sláandi tölur sem sýna að mikið óréttlæti þrífst í réttarkerfinu, sérstaklega hjá minnihlutahópum.

Woodward er blökkumaður og eru blökkumenn helst sá hópur sem er ranglega dæmdur í fangelsi. Að mati Rodney Ellis, öldungadeildarþingmanns í Texas, er ekki lengur hægt að neita því að réttarkerfið sé alvarlega gallað, að því er fram kemur á fréttavef Reuters.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert