Norsk kona eignaðist þrjú börn með föður sínum

Margar konur, sem á síðasta ári leituðu til Stuðningssetursins gegn sifjaspellum í Ósló, hafi eignast börn með feðrum sínum. Ein konan eignaðist að minnsta kosti þrjú börn með föður sínum. 

Norskir fjölmiðlar hafa í dag eftir upplýsingafulltrúa setursins, að 5000 konur hafi notfært sér þjónustuna þar á síðasta ári. Tvær kvennanna hafi eignast fleiri en eitt barn með feðrum sínum, þar af önnur að minnsta kosti þrjú. Sú kona hafi fengið aðstoð og komist undan valdi föður síns. Hún hafi þó ekki kært hann enn til lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert