Tvö hús sprungu í London

Maður sem fannst í rústum tveggja húsa sem hrundu í sprengingu í Harrow í Norð-Vestur London í gærkvöldi er látinn. Tvö heimili gjöreyðilögðust í sprengingunni sem talið að hafi verið af völdum gasleka og eitt hús hrundi að hálfu leyti.

Tveir særðust og um 30 manns þurftu að leita húsaskjóls í kjölfar sprengingarinnar.

Talsmaður Scotland Yard sagði við blaðamenn Sky fréttastofunnar að ekki væri búið að staðfesta orsök sprengingarinnar né heldur að útiloka að um morðrannsókn væri að ræða.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert