Fann fyrir eftirskjálfta í miðri hvatningarræðu

Hu Jintao heilsar björgunarsveitarmönnum.
Hu Jintao heilsar björgunarsveitarmönnum. Reuters.

Forseti Kína Hu Jintao fann fyrir eftirskjálfta í Wenchuan sýslu er hann hélt hvatningarræðu til björgunarsveitarmanna í dag. 

Wenchuan sýsla er í Sichuan héraðinu nálægt skjálftamiðju jarðskjálftans sem skók Kína á mánudaginn var. Jintao hvatti björgunarsveitarmenn að reyna eftir fremsta megni að ná til afskekktra þorpa þar sem fólk er í hættu statt en hann bætti við að „þið verðið einnig að passa upp á ykkur sjálfa.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert