Alþjóðabankinn veitir Búrma ekki fjárhagsaðstoð

Mikil neyð er í Búrma eftir fellibylinn Nargis.
Mikil neyð er í Búrma eftir fellibylinn Nargis. AP

Alþjóðabankinn mun ekki veita Búrma fjárhagsaðstoð eða lán vegna útistandandi skulda, að sögn Juan Jose Daboub, framkvæmdastjóra Alþjóðabankans.  Daboub segir að bankinn sé í samstarfi með ríkjum í Suð-Austurasíu, við að veita Búrma tæknilegan stuðning í mati á tjóni og ráðleggingar varðandi uppbyggingu í landinu.

Daboub segir hins vegar að bankinn sé ekki í aðstöðu til þess að veita Búrma fjárhagsaðstoð vegna þess að herforingjastjórn landsins hefur verið í vanskilum við bankann frá því 1998. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert