Mannskæðir skýstrokkar

Að minnsta kosti átta manns létust í skýstrokkum sem gengu yfir miðvesturríki  Bandaríkjanna í gær.

Sjö létust í bæjunum Parkersburg og New Hartford í norðurhluta Iowa og var lýst yfir neyðarástandi í þremur sýslum Iowa vegna veðurofsans.

Skýstrokkur gekk yfir Minnesota í gær og lést þar tveggja ára gamalt barn og níu slösuðust.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert