Fundinn sekur um 11 morð

Kviðdómur í Los Angeles fann í dag 29 ára mann sekan um ellefu morð að yfirlögðu ráði, en hann olli því að lest fór út af sporinu og rakst á aðra í janúar 2005. Auk þeirra ellefu sem fórust slösuðust um 180 manns. Sakborningurinn kvaðst einungis hafa ætlað að taka eigið líf er hann lagði jeppanum sínum á brautarteinunum með fyrrgreindum afleiðingum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert