Undirbúa refsiaðgerðir gegn Zimbabwe

George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í dag að stjórn sín væri að undirbúa refsiaðgerðir gegn stjórnvöldum í Zimbabwe. Segir Bush að Robert Mugabe Zimbabweforseti hafi virt lýðræði og mannréttindi „gjörsamlega að vettugi“. Hefur Mugabe verið sakaður um að hafa beitt ofbeldi til að knýja kjósendur í Zimbabwe til að greiða sér atkvæði í forsetakosningum sem fram fóru í gær, en þar var Mugabe einn í framboði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert