Þriðji hver íbúi of feitur

Offita er vaxandi vandamál sem hefur ýmis heilsufarsvandræði í för …
Offita er vaxandi vandamál sem hefur ýmis heilsufarsvandræði í för með sér. Reuter

Nærri einn þriðji íbúa Missisippi, Alabama og Tennessee er of feitur. Suðrið heldur þeim vafasama heiðri að vera sá landshluti þar sem hvað flestir offitusjúklingar búa.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu í dag. Niðurstöður hennar hafa verið svipaðar undanfarin þrjú ár. Þrjú hundruð og fimmtíu þúsund manns tóku þátt í símakönnuninni. Niðurstöður eru sagðar sýna heldur of lágar tölur þar sem karlmenn ýkja oft hæð sína og konur lækka gjarnan líkamsþyngd sína í svörum.

Colorado var það fylki þar sem fæstir mældust of þungir, þar var hlutfallið nítján prósent.

Hvers vegna ætli Suðrið komi svo illa út? Hefðbundið mataræði fólks í Suðurríkjunum er fituríkt og djúpsteikt og það skýrir sennilega mikið,segja sérfræðingar.

Að auki býr tiltölulega hátt hlutfall íbúa í dreifbýli og sömuleiðis búa þar fleiri þeldökkar konur en annars staðar en hlutfall feitra er hærra í þessum hópum en öðrum.

Colorado fylki er hins vegar þekkt fyrir líkamsþjálfun. Þar er að finna fjölda göngu- og hjólreiðastíga og hæð fylkisins yfir sjávarmáli gerir það að auki að verkum að líkaminn erfiðar þar meira en á mörgum öðrum stöðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert