Farþegaþotur rákust saman á flugbraut

Tvær farþegaflugvélar rákust saman á flugbraut á Manchesterflugvelli á Englandi í dag. Rakst vængur á Boeing 737 flugvél spænska leiguflugfélagsins Futura á stél Airbus A320 flugvél þýska flugfélagsins Lufthansa.

Talsmaður flugvallarins sagði ekki ljóst hvers vegna áreksturinn varð og hvort miklar skemmdir hefðu orðið á vélunum. Farþegar voru í báðum vélunum en þeir gengu frá borði eftir óhappið og ekki er vitað til að neinn hafi sakað. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert