Þrjár vestrænar konur skotnar til bana í Afganistan

Þrjár konur, sem störfuðu  fyrir bandaríska hjálparstofnun, voru skotnar til bana í Lowgar héraði í Afganistan í dag.  Konurnar þrjár voru frá Bandaríkjunum, Kanada og Írlandi.  Bílstjóri þeirra var einnig skotinn til bana og annar afganskur maður særðist í skotárásinni.

Að sögn lögreglu störfuðu konurnar fyrir bandarísku hjálparsamtökin International Rescue Committee.

Tveir óþekktir menn hófu skotárás á tvo bíla sem voru á leið frá héraðinu til Kabúl.  Hjálparstofnanir og starfsfólk þeirra hafa í auknum mæli verið skotmark árásarmanna, að sögn lögreglu. 

Nato hermenn í Afganistan.
Nato hermenn í Afganistan. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert