Lögregla skaut eiganda vefseturs til bana

Lögregla í Rússlandi skaut í dag til bana eiganda vefjar sem gagnrýnt hefur yfirvöld harðlega, að því er samstarfsmenn hans greindu frá. Þetta gerðist í Ingúsetíu, sem er næsta hérað við Tétsníu, og kann að auka spennuna í héraðinu, þar sem fjölmargar árásir hafa að undanförnu verið gerðar á lögreglu og embættismenn.

Eigandi og ritstjóri vefjarins Ingushetiya.ru, Magomed Jevlojev, var handtekinn í dag er hann kom með flugvél til Ingúsetíu, sagði aðstoðarritstjóri vefjarins.

Lögreglan hafi farið með Jevlojev á brott í bíl, en síðan skilið lík hans eftir  á veginum með kúlu í höfðinu.

Talsmaður rússneskra stjórnvalda sagði að Jevlojev hefði verið fluttur til yfirheyrslu en hefði látið lífið á leiðinni. Hafin væri rannsókn á hvað gerst hefði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert