Fleirum þótti Biden standa sig betur

Samkvæmt skoðanakönnunum meðal bandarískra kjósenda þótti heldur fleirum að Joe Biden, varaforsetaefni demókrata, hefði staðið sig betur í sjónvarpskappræðum við Söru Palin, varaforsetaefni repúblíkana, sem fram fóru í nótt að íslenskum tíma. Palin þótti þó hafa staðið sig betur en búist hafði verið við.

Þetta voru einu kappræður varaforsetaefnanna fyrir kosningarnar í næsta mánuði. Voru þær taldar sérlega mikilvægar fyrir Palin, sem hefur átt undir högg að sækja undanfarið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert