Óttast um líf vændiskvenna
Margar vændiskonur eru fluttar nauðugar viljugar sjóleiðina til hafnarborgarinnar Marsaille. Reuters
Franska lögreglan leitar nú þriggja vændiskvenna sem saknað er í héraðinu Provence í suðurhluta landsins. Konurnar eru frá Austur-Evrópu og Alsír, en málið þykir undirstrika mikið varnarleysi kvenna sem selja blíðu sína gagnvart misyndismönnum.
Patrick Salameh, sem er 51 árs, er grunaður um aðild að hvarfi kvennanna og hefur lögreglan ákaft leitað þeirra á landareign í eigu fjölskyldu hans.
En hann var á sínum tíma dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir vopnað rán.
Á sama tíma rannsakaði lögreglan erfðaefni á heimili mannsins í Marseille, ásamt því að leggja hald á gripi í eigu tveggja kvennanna.
Salameh var handtekinn fyrir skömmu eftir að 24 gömul vændiskona frá Marokkó kærði hann fyrir nauðgun. Sagði hún hann hafa beitt sig linnulausu líkamlegu ofbeldi í sex klukkustundir.
Var hann í kjölfarið ákærður fyrir að halda tveimur vændiskvennanna föngnum, þar með talið 42 ára konu frá Úkraínu sem tilkynnt var um að hefði horfið dagana 5. til 6. október.
Hin vændiskonan, 28 ára gömul stúlka frá Alsír, hvarf tveimur dögum síðar eftir að hafa farið heim með viðskiptavini.
Þá er hann grunaður um aðild að hvarfi 23 ára gamallar vændiskonu frá Rúmeníu sem ekkert hefur spurst til síðan 22 október síðastliðinn.
Salameh lauk afplánun sinni árið 2005 og hefur lögreglan í Marsaille lýst honum sem „greindum manni sem haldi heimili ásamt unnustu og barni“. Hann hefur unnið í byggingariðnaði en er einnig listmálari sem meðal annars hefur notað kvenlíkamann í listsköpun sinni.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 1. maí 2009, Erlent Stjúpi Baby P fundinn sekur um nauðgun
- Mánudagur, 7. september 2009, Erlent Kennedy sækist ekki eftir þingsæti frænda síns
- Föstudagur, 2. nóvember 2007, Erlent „Prestur vændiskvenna“ látinn
- Sunnudagur, 16. mars 2008, Erlent Lík fannst við leit að norskum námsmanni í London
- Sunnudagur, 20. desember 2009, Erlent Ungs siglingakappa leitað
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































