Enn fleiri handtökur vegna barnaklámhrings

mbl.is/Friðrik

Rúmlega 170 manns hafa nú verið handteknir víða um heim í tengslum við upprætingu alþjóðlegs barnaklámhrings. Þá hefur ellefu stúlkum, á aldrinum 3 til 13 ára, verið bjargað úr höndum barnaníðinga í Bandaríkjunum og nokkrum til viðbótar í Evrópu, m.a. í Úkraínu. Þetta kemur fram á fréttavef CNN. 

Samkvæmt upplýsingum yfirvalda í Ástralíu, þar sem fyrstu handtökur vegna málsins fóru fram er um hrottalegasta kynferðisofbeldi gagnvart börnum að ræða sem yfirvöld þar í landi hafa fengið upplýsingar um.  Mun rannsóknin hafa hafist er upp komst um myndasendingará netinu þar sem sjá mátti belgískan mann beita þrjár dætur sínar kynferðislegu ofbeldi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert