Saka Breta um sýklahernað

Kona sem talin er sýkt af kóleru flutt á sjúkrahús …
Kona sem talin er sýkt af kóleru flutt á sjúkrahús í Harare höfuðborg Zimbabve. AP

Upplýsingamálaráðherra Zimbabve hefur lýst því yfir að rekja megi kólerufaraldurinn í landinu til sýklahernaðar Breta.  Þá segir hann að myndir af veiku fólki sem sagðar eru teknað í Zimbabwe séu annað hvort frá Darfur-héraði í Súdan eða Austur-Kongó. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.

„Kóleran er úthugsuð kynþáttaárás á Zimbabve að hálfu fyrrum nýlenduveldis sem iðrast einskis og hefur safnað liði meðal bandamanna sinna í Ameríku og á Vesturlöndum með  það fyrir augum að ráðast inn í landið,” segir ráðherrann Sikhanyiso Ndlovu.

Rob McInturff, talsmaður Hvíta húsins í Washington segir staðhæfingarnar fáránlegar og að ljóst sé að  Robert Mugabe, forseti Zimbabve sé greinilega ekki tilbúinn til að taka nein raunveruleg skref til að ráða niðurlögum kólerufaraldursins í landinu.

Mugabe staðhæfði á fimmtudag að þegar hefði tekist að binda enda á faraldurinn. Samkvæmt heimildum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar WHO eru margir mánuðir í að hægt  verði að ráða niðurögum faraldursins.

Zimbabwe var bresk nýlegna til ársins 1965 og hlaut ekki fullt sjálfstæði fyrr en árið 1980.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert