Vill efla eftirlit með fjármálastofnunum

Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur heitið því að efla eftirlit með fjármálastofnunum og berjast gegn gegndarlausri græðgi og fjársvikum. Hann segir að með þessu vilji hann koma aftur á stöðugleika í bandaríska hagkerfinu.

Obama hefur útnefnt Mary Schapiro í embætti forstjóra bandaríska fjármálaeftirlitsins og Gary Gensler í embætti formanns viðskiptaeftirlitsins. Obama segir að þau eigi að leiða þá miklu vinnu sem ætlað er að breyta öllu eftirlitskerfinu.

„Þau munu aðstoða við að setja á laggirnar nýjar, skynsamlegar reglur sem munu vernda fjárfesta, neytendur og allt hagkerfið okkar gegn fjársvikum og að fáir óábyrgir aðilar geti ráðskast með það,“ sagði Obama við blaðamenn í Chicago í dag.

Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, hélt blaðamannafund í Chicago í …
Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, hélt blaðamannafund í Chicago í dag. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert