Þriggja tíma árásarhlé dag hvern

Ísraelsher mun gera þriggja klukkustunda hlé á sprengjuárásum sínum á Gaza-svæðið dag hvern frá og með deginum í dag, að sögn talsmanns hersins.

„Ákveðið var að gera hlé á sprengjurárásum á milli klukkan eitt og fjögur (11 til 14 að íslenskum tíma),“ hefur AFP eftir talsmanninum. "

Tilkynningin kom stuttu eftir Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísrael, tilkynnti að Ísraelar myndu opna eins konar mannúðarleið inn á Gaza-svæðið til að gera hjálparsamtökum kleift að koma íbúum á svæðinu til hjálpar.

„Þetta felur í sér að ákveðin svæði verða opin í ákveðinn tíma og innan hans geta íbúar leitað aðstoðar og náð sér í vistir,“ segir í yfirlýsingu Olmerts.

Alþjóðasamfélagið þrýstir nú í síauknum mæli á Ísraela að hætta hernaðaraðgerðum sínum á Gaza-svæðinu.

Sameinuðu þjóðirnar höfnuðu í dag þá alfarið ásökunum Ísraelshers um að Hamas-liðar hafi hafst við í al-Fakhura skólann, þar sem að 42 létu lífið er Ísraelar létu sprengjum rigna á skólann í gær. 

„Í kjölfar frumrannsóknar okkar erum við 99.9% viss um að engir árásarliðar eða hernaðarstarfsemi hafi farið fram innan skólabygginganna,“ segir Christopher Gunness, talsmaður flóttamannahjálpar Sþ í Palestínu. 

Hjálparsamtökum verður gert kleift að koma íbúum Gaza-svæðisins til aðstoðar.
Hjálparsamtökum verður gert kleift að koma íbúum Gaza-svæðisins til aðstoðar. NIKOLA SOLIC
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert