Guðleysingjar auglýsa á Ítalíu

Guðleysinginn Richard Dawkins stendur í breskum strætisvagni sem ber auglýsingu …
Guðleysinginn Richard Dawkins stendur í breskum strætisvagni sem ber auglýsingu hóps guðleysingja. Reuters

„Slæmu fréttirnar eru að guð er ekki til. Góðu fréttirnar að við þurfum ekki á honum að halda.“ Svona hljómar slagorðið sem strætisvagnar í ítölsku borginni Genóa munu bera frá og með fjórða febrúar nk. Hópur guðleysingja stendur að auglýsingaherferðinni sem hefur verið fordæmd af erkibiskupsdæminu í Genóa.

Farið var af stað með svipaðar herferðir í Bretlandi og á Spáni. Raunar hófst herferðin á Spáni í dag. Þar var slagorðið hins vegar: „Guð er líklega ekki til. Hættu því að hafa áhyggjur og njóttu lífsins.“ Þær hafa hlotið viðlíka viðtökur hjá kirkjunnar mönnum.


Auglýsingar guðleysingja birtust fyrst á strætisvögnum í Barcelona í dag.
Auglýsingar guðleysingja birtust fyrst á strætisvögnum í Barcelona í dag. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert