Obama sór embættiseið aftur
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sór embættiseið sinn aftur í kvöld að viðstöddum John Roberts, forseta hæstaréttar Bandaríkjanna. Obama sór eiðinn á svölum þinghússins í Washington á þriðjudag en fipaðist þegar hann fór með eiðstafinn.
Obama sór eiðinn á ný í kortaherbergi Hvíta hússins í kvöld.
„Við teljum ekki að neinir hnökrar hafi verið á svardaganum og að forsetinn hafi verið settur í embætti með viðeigandi hætti í gær," sagði Greg Craig, ráðgjafi í Hvíta húsinu. „En eiðstafurinn stendur í stjórnarskránni sjálfri. Og til að gæta allrar varúðar, vegna þess að einu orði var hnikað til, lét Roberts dómforseti sverja eiðinn í annað sinn."
Þegar Obama sór eiðinn í fyrra skiptið las Roberts eiðstafinn og Obama hafði orð hans eftir. Roberts ruglaðist aðeins í orðaröðinni og það virtist koma Obama í opna skjöldu þannig að hann virtist óviss á textanum.
Tveir aðrir Bandaríkjaforsetar hafa endurekið embættiseiðinn undir svipuðum kringumstæðum, þeir Calvin Coolidge og Chester A. Arthur.
Obama sagðist í kvöld hafa beðið yfirmenn Bandaríkjahers að útbúa áætlanir um „ábyrgt" brotthvarf bandarískra hersveita frá Írak.
Bloggað um fréttina
-
Páll Thayer Obama mómentið... -
Þóra Magnúsdóttir Obama fékk fleiri orð til að endurtaka en Bush. -
Hermann Óskarsson Presturinn las rangt fyrir
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 20. janúar 2009, Erlent Obama 44. Bandaríkjaforsetinn
- Þriðjudagur, 20. janúar 2009, Erlent Obama kemur í Hvíta húsið sem forseti
- Laugardagur, 8. ágúst 2009, Erlent Sotomayor sver embættiseið
- Laugardagur, 21. febrúar 2009, Erlent Brown heimsækir Obama 3. mars
- Þriðjudagur, 20. janúar 2009, Erlent Styttist í embættistökuna
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































