Dóttir Thatcher rekin fyrir ummæli

Carol Thatcher.
Carol Thatcher.

Carol Thatcher, dóttir járnfrúarinnar Margaret Thatcher, hefur verið rekin úr starfi íþróttafréttamanns á BBC eftir niðrandi ummæli um keppanda á opna ástralska mótinu í tennis.

Notaði Carol orðið „golliwog“ um einn keppenda, en um er að ræða lýsingarorð yfir ógeðslega manneskju sem birtist fyrst á prenti sem nafn á brúðu í barnabók á 19. öld. 

Þótti orðið hafa á sér blæ kynþáttafordóma á síðari tímum.

Ummælin féllu utan útsendingar en þeim er engu að síður tekið mjög alvarlega þar sem þau voru látin falla í heyranda hljóði.

Ekki er vitað um hvern hún var að tala.

Hefur henni verið vikið úr þættinum „The One Show“ en mun þó áfram sinna öðrum verkefnum fyrir BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert