Svipmynd: Í stríði við stjórnvöld í Kreml

Boris Berezovsky.

Boris Berezovsky. Reuters

mbl.is Eftir Guðmund Sv. Hermannsson

Rússneski kaupsýslumaðurinn Boris Berezovsky, sem í gær fullyrti á Sky sjónvarpsstöðinni að rússneskir auðmenn, tengdir rússneskum stjórnvöldum, hefðu stundað peningaþvætti á Íslandi, hefur oft vakið athygli fyrir yfirlýsingar sínar og ásakanir í garð ráðamanna í Kreml. Þeir hafa einnig reynt af megni að koma rússneskum lögum yfir Berezovsky, sem hefur verið landflótta í tæpan áratug.

Berezovsky, sem er 63 ára að aldri, var á sínum tíma einn af ólígörkunum svonefndu, mönnum, sem auðguðust gríðarlega í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar þegar reynt var í einni svipan að byggja upp markaðskerfi í Rússlandi á rústum kommúnísks hagskipulags. 

Til þessa hóps töldust m.a. Mikhaíl Khodorkovskí, Vladímír Gúsinskí, Vladímír Potanín og Alexander Smolenskí auk Berezovskís. Sumir  þessara manna náðu jafnframt miklum áhrifum innan rússneska stjórnkerfisins, svo miklum að ýmsir töldu þá á tímabili stjórna landinu í raun. Þeir uxu að áhrifum í skjóli Bórisar Jeltsíns, þáverandi forseta Rússlands en þegar Vladímír Pútín tók við forsetaembættinu árið 2000 breyttist hagur þeirra á svipstundu.

Auðgaðist á bílabraski

Berezovsky er menntaður stærðfræðingur en hann auðgaðist á því að flytja inn Mercedes Benz bíla til Rússlands. Þá eignaðist hann olíufélagið Sibneft ásamt Roman Abromóvítsj, eiganda enska knattspyrnuliðsins Chelsea, og meirihluta í ORT, stærstu sjónvarpsstöð Rússlands. Hann beitti sjónvarðsstöðinni m.a. purrkunarlaust í þágu Jeltsíns í aðdraganda forsetakosninganna árið 1996. Þá studdi hann einnig Pútín sem eftirmann Jeltsíns.

En þegar Pútín tók við völdum í ársbyrjun 2000 hóf hann strax að draga úr pólitískum áhrifum óligarkanna. Berezovsky reyndi þá að skipuleggja pólitískt andóf gegn forsetanum sem svaraði með því að láta hefja rannsókn á viðskiptum kaupsýslumannsins. Berezovsky sá þá sitt óvænna og flúði land árið 2001, fyrst til Frakklands og síðan til Bretlands þar sem hann fékk hæli sem pólitískur flóttamaður árið 2003.

Þess má geta, að Míkhaíl Khodorkovskí, sem var á sínum tíma aðaleigandi olíufélagsins Yukos og ríkasti maður Rússlands og hélt áfram pólitískri baráttu gegn Pútín, situr nú í fangabúðum í Síberíu og afplánar 9 ára fangelsisdóm fyrir skattsvik og fleiri afbrot. 

Berezovsky var ákærður í Rússlandi árið 2003 fyrir stórfelld fjársvik í tengslum við þjófnað á bílum frá fyrirtækinu AvtoVaz, stærsta bílaframleiðanda Rússlands.  Rússneska ríkissaksóknaraembættið krafðist þess að bresk stjórnvöld framseldu Berezovsky til Rússlands en því höfnuðu Bretar. Fleiri ákærur voru lagðar fram á hendur Berezovsky og hann var dæmdur haustið 2007 í sex ára fangelsi að sér fjarverandi fyrir að svíkja stórfé út úr rússneska ríkisflugfélaginu Aeroflot. 

Þá hafa stjórnvöld í Sviss, Hollandi og Brasilíu einnig rannsakað ásakanir á hendur Berezovsky um stórfellt peningaþvætti. Berezovsky hefur látið sér fátt um finnast og segir að öll þessi mál séu runnin undan rifjum stjórnvalda í Moskvu.

Vill Pútín frá völdum

Berezovsky hefur reynt að grafa undan rússneskum stjórnvöldum með ýmsum hætti og hefur aldrei farið leynt með að takmark hans sé að koma Pútín og félögum hans frá völdum.

Berezovsky hefur ítrekað kallað Pútín  glæpamann og hryðjuverkamann í viðtölum við fjölmiðla. Árið 2007 sagðist hann í viðtali við breska blaðið Guardian vera að undirbúa byltingu í Rússlandi í þeim tilgangi að koma Pútín frá. Þá var Rússum nóg boðið og ákærðu Berezovsky formlega fyrir valdaránssamsæri og kröfðust á ný framsals Berezovkys en Bretar höfnuðu því.

Bendlaður við morðsamsæri

Morðið á rússneska útlaganum Aleksander Litvínenkó í Lundúnum undir lok ársins 2006 vakti heimsathygli en eitrað var fyrir Litvínenkó með geislavirku efni. Litvínenkó starfaði hjá rússnesku leyniþjónustunni áður en hann flúði til Bretlands en þeir Berezovsky áttu talsverð samskipti í Lundúnum. Litvínenkó fullyrti m.a. árið 2003 að Rússar áformuðu að myrða Berezovsky í Lundúnum. 

Bresk stjórnvöld grunuðu að rússneski kaupsýslumaðurinn Andrej Lugovoj, sem um tíma starfaði fyrir rússnesku  leyniþjónustuna, hefði komið geislavirka efninu fyrir í tebolla Litvínenkós þegar þeir hittust á veitingahúsi í Lundúnum haustið 2006. Kröfðust Bretar þess árið 2007 að Lugovoj yrði framseldur til Bretlands. Því höfnuðu Rússar og Lugovoj hélt í kjölfarið blaðamannafund í Mosvku þar sem hann sakaði Berezovsky um að tengjast morðinu á Lítvínenkó og einnig morðinu á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskaju í Moskvu. Hefðu morðin verið liður í ófrægingarherferð gegn Pútín og stjórn hans á alþjóðavettvangi.  

En Berezovsky segir að öll þessi mál séu runnin undan rifjum Pútíns og félaga hans, sem séu reiðubúnir að ryðja úr vegi öllum þeim, sem  þeir skilgreinda sem óvini Rússlands. Sjálfur segist Berezovsky vera í stöðugri lífshættu. 

Þannig upplýsti Berezovsky í ágúst 2007, að hann hefði þá um sumarið flúið land um tíma samkvæmt ráðleggingum bresku lögreglunnar Scotland Yard, sem hafi komið í veg fyrir að reynt yrði að myrða hann.

Sagðist Berezovsky hafa yfirgefið Bretland með hraði en komið aftur til landsins viku síðar eftir að Scotland Yard hafði samband við hann og sagði óhætt fyrir hann að koma aftur.

Breska ríkisútvarpið BBC segir, að Berezovsky hafi breytt húsi, sem hann keypti í Surrey af plötusnúðnum Chris Evans, í hálfgert virki með skotheldu gleri í gluggum, öflugu eftirlitskerfi og sérstyrktum stáldyrum.

Viðtalið við Berezovsky á Sky

Boris Berezovsky í Lundúnum.

Boris Berezovsky í Lundúnum. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »
Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.

Romney lofar minna atvinnuleysi

19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Talíbanar eru mótfallnir menntun kvenna.
15:55 Yfir 120 stúlkur og þrír kennarar voru lögð inn á spítala í Afganistan eftir að eitruðum úða var sprautað inn í Bibi Hajera stúlknaskólann í borginni Talokhan. Meira »

Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra

Mynd úr safni.
15:11 Meirihluti Bandaríkjamanna er hlynntur lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra, þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fjölmiðlana Washington Post og ABC News. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur ollið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Segja Watson fá réttláta meðferð

Paul Watson.
15:41 Paul Watson, stofnandi samtakanna Sea Shepherd, fengi sanngjarna málsmeðferð ef hann yrði framseldur til Kosta Ríka. Framsals hans þangað er krafist, en hann er sakaður um að hafa truflað þar hákarlaveiðar og reynt að myrða einn veiðimannanna. Watson var handtekinn í Þýskalandi í síðustu viku. Meira »

Hollande: Ekki einkamál Grikkja myndskeið

Hollande: Ekki einkamál Grikkja
14:50 Francois Hollande, forseti Frakklands, segist tilbúinn til að gera hvað sem er til að Grikkir verði áfram á evrusvæðinu. Þetta sagði Hollande eftir að hafa fundað með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. Meira »

Myrti dóttur sína og bútaði hana niður

Diönu litlu var ákaft leitað en í ljós kom að móðir hennar myrti hana.
14:40 Líkamshlutar fjögurra ára belgískrar stúlku, sem leitað hafði verið að síðan á mánudaginn, fundust vafðir í plastpoka í frystikistu fjölskyldu hennar. Meira »

Lifði af fall niður Niagara fossana

Niagara fossarnir eru samsettir úr þremur fossum: Horseshoe Falls (Kanadamegin), American Falls og Bridal Veil ...
13:45 Maður lifði af u.þ.b. 55 metra fall niður Niagara fossana á landamærum Bandaríkjanna og Kanada á mánudaginn. Hann er fjórði maðurinn sem lifir fallið af án nokkurs hlífðarbúnaðar. Meira »

Taldi sig afhöfða geimveru

Vince Weiguang Li.
14:17 Maður sem afhöfðaði farþega um borð í rútu í Kanada árið 2008 ræddi nýverið atvikið í fyrsta sinn. Hann segir að hann hafi haldið að hann væri að myrða geimveru en eftir að hann var handtekinn var hann greindur með ofsóknargeðklofa. Hann var því metinn ósakhæfur. Meira »

Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden

Húsið þar sem að Osama bin Laden var felldur.
12:20 Pakistanskur læknir, sem aðstoðaði bandarísk stjórnvöld við leitina að Osama bin Laden, hefur verið dæmdur í 33 ára fangelsi. Meira »

Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu

Frá Suður-Kóreu.
11:59 Barnaníðingur í Suður-Kóreu verður vanaður með lyfjagjöf síðar í vikunni. Þetta verður fyrsta vönunin eftir að yfirvöld samþykktu lög þess efnis í fyrra í kjölfar gríðarlegrar aukningar á kynferðisofbeldi í garð barna þar í landi. Meira »

Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni

10:58 Lögreglan í Udmurtia-héraði í Úralfjöllum Rússlands handtók nýverið nýgifta konu í brúðkaupsveislunni hennar eftir að hún banaði manni, sem skuldaði henni pening, kvöldið áður. Meira »

Hvetja íbúa til að snúa aftur heim

Í bænum Finale Emila, sem varð einna verst úti í skjálftanum, hafast nú um 2.000 ...
10:27 Þrátt fyrir marga eftirskjálfta hafa ítölsk yfirvöld hvatt íbúa í norðausturhluta landsins til að snúa aftur heim til sín og athuga hvort heimili þeirra hafi skemmst í stóra jarðskjálftanum sem varð sl. sunnudag. Meira »

Breivik minnti á Voldemort

Anders Behring Breivik við réttarhöldin.
11:27 „Við heyrðum hann ganga um, anda og hvæsa. Mér fannst þetta vera eins og Voldemort í Harry Potter,“ sagði tvítugur Norðmaður, sem lifði af skotárásina í Útey síðasta sumar, við réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik í dag. Meira »

Lögreglumaður myrtur á kjörstað

Forsetakosningar hófust í Egyptalandi í dag.
10:28 Egypskur lögreglumaður var skotinn til bana í dag fyrir utan kjörstað þegar hann reyndi að stilla til friðar á milli stuðningsmanna tveggja frambjóðenda í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í sögu Egyptalands. Meira »

Örin eftir Breivik tákn um sigur

Anders Behring Breivik.
09:56 Unglingsstelpa sem lifði af skotárás Anders Behring Breivik í Útey 22. júlí í fyrra segir ör sín vera til merkis um sigur gegn fjöldamorðingjanum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Trigano Odyssee
Til sölu Trigano Odyssee tjaldvagn árg. 2006, mjög lítið notaður. Uppl. í síma 8...
Glæsilegt sumarhús í Borgarfirði til leigu
Glæsilegt heilsárshús til leigu 11km norður af Borgarnesi. Stutt í frábærarar ná...
Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali !!
Nýjar vélar með 3 ára ábyrgð. Notaðar vélar yfirfarnar af fagmanni og sumar með ...
HREINSA ÞAKRENNUR
Hreinsa þakrennur, laga ryðbletti, hreinsa garða og tek að m...
 
Forval fit

Mynd af auglýsingu ...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Reykjanesbær sjóvarnir

Útboð Reykjanesbær, sjóvarnir 2012...