Vildi að kærastinn barnaði dóttur sína

Bandarísk kona – og kærasti hennar – búsett í Uniontown í Pennsylvaníufylki var handtekin í vikunni eftir að hún gaf 13 ára dóttur sinni lyf og áfengi í þeim tilgangi að kærastinn gæti haft samræði við dótturina án hennar vitundar. Konan sem ekki getur átt börn vildi eignast barn með kærasta sínum.

Þau hafa þegar verið ákærð, hún fyrir að stofna velferð barns síns í hættu en hann fyrir tilraun til nauðgunar.

Móðir stúlkunnar bað hana um að sænga hjá kærasta sínum í desember sl., og eiga með honum barn þeirra. Stúlkan hafnaði og á undanförnum mánuðum hefur maðurinn þrisvar reynt að koma fram vilja sínum; í tvö skipti var stúlkunni byrlað áfengi og lyf. 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert