Sólin blessuð í Jerúsalem

Horft yfir Gömlu borgina í Jerúsalem í morgun
Horft yfir Gömlu borgina í Jerúsalem í morgun AP

Tugir þúsunda gyðinga tóku í morgun þátt í athöfn sem fram fer á tuttugu og átta ára fresti en við athöfnina er farið með bæn og sólin blessuð við sólarupprás.  Það gefur athöfninni aukna merkingu nú  að páskahátíð gyðinga hefst við sólarlag.

Fólkið, sem flest var vafið í bænasjöl að hætti trúaðra gyðinga, safnaðist saman við Grátmúrinn í Gömlu borginni í Jerúsalem og á hæðum í nágrenni hennar til að verða vitni að því er sólin reis upp fyrir Jerúsalem.

 Gyðingar fara með bænina Birkat Hakhama á tuttugu og átta ára fresti en þá telja þeir sólina vera á sama stað gagnvart jörðu og þegar alheiurinn varð til en þar var samkvæmt gyðingatrú fyrir 5.769 árum.
Við Grátmúrinn í morgun
Við Grátmúrinn í morgun AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert