Helmingur telur pyntingar réttlætanlegar
Fólk á leið til réttarhalda vegna máls Kanadamannsins Omar Khadr í herstöð Bandaríkjahers á Guantanamo. POOL
Rúmlega helmingur Bandaríkjamanna lítur svo á að pyntingar geti verið réttlætanlegar til að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Associated Press-GfK. Könnunin sýnir einnig að mjög skiptar skoðanir eru meðal Bandaríkjamanna um fyrirhugaða lokun Guantanamo fangabúða Bandaríkjahers.
52% þeirra sem tók þátt í könnuninni segjast líta svo á að pyntingar séu stundum réttlætanlegar til að komast yfir upplýsingar sem geti komið í veg fyrir hryðjuverk. Í sambærilegri könnun frá árinu 2005 sögðust 38% vera þeirrar skoðunar. Mun meiri stuðningur er við þetta sjónarmið meðal repúblíkana en demókrata.
Þá segjast 47% styðja áform Baracks Obama Bandaríkjsforsetaum lokun Guantanamo-búðanna en 47% vera mótfallin þeim. Mun meiri stuðningur er við áform Obama meðal demókrata en repúblíkana.
Samkvæmt könnuninni hafa 70% aðspurðra trú á því að Obama muni ganga vel í baráttunni gegn hryðjuverkum. Um 35% óttast hins vegar enn að þeir eða ástvinir þeirra verði fórnarlömb hryðjuverka og hefur það hlutfall ekki minnkað á undanförnum fimm árum.
Þá segjast 23% þátttakenda í könnuninni styðja repúblíkanaflokkinn en í síðasta mánuði sögðust 18% þátttakenda í sambætilegri könnun gera það.
64% þátttakenda segjast hins vegar sáttir við frammistöðu Obama í embætti Bandaríkjaforseti og um helmingur segist telja Bandaríkin vera á réttri leið.
Obama gaf fyrirmæli um að Guantanamo-búðunum skyldi lokað nokkrum dögum eftir að hann tók við embætti og lýsti því þá einnig yfir að Bandaríkjamenn stundi ekki pyntingar.
Öldungadeild Bandaríkjaþings hafnaði því síðan í atkvæðagreiðslu, með 90 atkvæðum gegn 6, að veita aukafjárveitingu vegna fyrirhugaðrar lokunar búðanna í upphafi næsta árs.
Skoðanakönnun AP-GfK Poll var gerð á tímabilinu 28. maí til 1. júní. 1.000 fullorðnir einstaklingar tóku þátt í könnuninni og voru skekkjumörk hennar 3,1%.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 2. júlí 2008, Erlent Michelle Obama umdeild
- Fimmtudagur, 11. desember 2008, Erlent Mikil ánægja með Obama
- Föstudagur, 12. mars 2010, Erlent Stoltur af hörðum yfirheyrslum
- Sunnudagur, 24. maí 2009, Erlent Skipulögð barátta gegn Obama
- Miðvikudagur, 20. maí 2009, Erlent Tekist á um Guantanamo
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































